20október

Hvar fć ég snípţröngar leđurbuxur????

Hehe ég verð nú að segja ykkur frá einum kennaranum mínum. Það er hún Aase sem fær alla mína samúð, hún er bara svo ótrúleg þessi kona. Hún er svo ekki að meika það í sambandi við tískuna, veit ekki alveg hvað hún er að hugsa stundum. Ok Aase er s.s. kona sem er svona 45-50 ára. Í dag mætti hún í hlýrabol og svörtum LEÐURBUXUM alveg snípþröngum.....hehe....og hvernig á maður að geta einbeitt sér í tíma þegar hún mætir í svona múnderingu. En það besta er að hún á líka brúnar leðurbuxur. Ég veit ekki alveg hvar hún verslar fatnaðinn sinn en þetta er bara algjör hörmung. Svo um dagin þá mætti hún líka í hlýrabol og smekkbuxum. Aase og Óli á Hellulandi gætu verið að meika það saman á hlýrabolnum. Þau gæti eytt heilli kvöldstund í það að bítta bolum og finna út úr því hvernig er best að hreyfa sig í hlýranum. Aase gæti jafnvel komið honum inn í leðurbuxnatískuna sína . Ég meina það, þetta er svo fyndið, líka af því að hún er ekki þessi töffa týpa sem gæti borið þetta. En svo er líka óþolandi að sitja í tímum hjá henni því hún bullar svo mikið og veður úr einu yfir í annað. Ég þurfti að sitja í heilan dag í tímum hjá henni.....en hún er nú samt voða elskuleg þessi elska.
En annars átti hún Sara mín afmæli á fimmtudagin. Við stelpurnar vöknuðum klukkan 6 um morguninn til þess að búa til voða góðan morgunmat. Bjuggum til heitt kakó með rjóma, vorum með brauðhorn, ost og sultur og svo auðvitað súkkulaði köku með rjóma og ferskum ananas. Vöktum svo skvísuna um hálf 7 og sungum afmælissönginn fyrir hana. Sátum svo og hámuðum í okkur góðgæti og hlustuðum á jólalög á meðan. Þetta var svo notalegt því það var líka kolniða myrkur og bara kertaljós. En akkúrat þá fannst manni bara eins og jólin væru að skella á og maður væri að fara heim og hitta alla. En þetta var svo nice og ekki leiðinlegt hvað Sara var ánægð. Svo um kvöldið þá komu Margrét og Helgi í kreppumat til okkar. Minna gátum við ekki gert því þau voru svo góð að lána okkur íbúðina sína fyrst þegar við komum til Dk. Þetta var voða notaleg kvöldstund og var spjallað og hlegið langt fram á kvöld.
En svo á laugardagin þá hélt hún Sara upp á afmælið sitt með pompi og prakt. Ákvað hún að hafa búningaþema. Við stelpurnar hjóluðum niðrí bæ á föstudeginum og keyptum okkur búninga. Sara var s.s. hjúkka, Elín fótboltadómari, Sveina slökkviliðsmaður og ég var lögga a.k.a Kiddi kylfa. Það voru nú aðallega íslendingar og einhverjir danir sem eru með Söru í bekk. Það var nú meiri stemmningin hérna í Kornmodsbakken. Svo voru haldnar brunaæfingar 3svar um kvöldið. Þá þurfti Kiddi kylfa og Sveina slökki að rýma húsið og það var farið í "allir dansa kónga" í kringum húsið....hehe algjör snilld. En það var svaka stuð á öllum og ef þið eruð með facebook þá getið þið séð myndir.....verðið að kíkja á þær.
Byrjaði aftur í skólanum í dag eftir efterårsferie....og lenti einmitt í tímum hjá Aase.....djö við klikkuðum á því að bjóða Aase í afmælið, hún hefði geta mætt í leðurbuxunum sínum og verið einhver hardkor rokkari eða meðlimur í Hell´s Angels....þetta voru mistök hjá okkur.
Sem betur fer þá var puttinn á kidda kylfu nú í heilu lagi eftir helgina, hann var ekki bitinn af síðast þegar ég vissi. Maður verður nú að passa upp á puttana sína, það gæti einhverjum dottið í hug að bara láta´ann fjúka.
En nú er ég sko sátt með mína drengi í Tindastól. Búnir að spila 2 leiki og vinna þá báða. Frábært alveg og væri ég nú meira en til að vera á stattinu með Hrafnhildi. Ég þyrfti eiginlega að gera samning við Icelandair og fá þá til þess að fljúga með mig frítt heim alltaf þegar heimaleikir eru.....það væri bar nice....hehe.
En annars vil ég fá fréttir af heiman....verið nú dugleg að láta Benna litla vita hvernig bændur hafa það og svona.
En þetta er orðið ágætt í bili.
Hafið það rosa gott elskurnar mínar.....miss you all

Leðurrún....vúúúpa

20. október 2008 klukkan 21:15
Sigrún Elva Benedikstdóttir
12 athugasemdir
15október

ósofin međ kreppuhárlit.....

Já ég þarf alltaf nokkur tuð frá Ollu svo ég komist aftur í gang.....
Það hefur nú ekkert sérstakt komið upp á hjá mér síðustu daga, sem er nú alveg ágætt svona til tilbreytingar. Nú er að vísu viku frí hjá mér í skólanum, svokallað efterårsferie....svona eins og við mundum segja á góðri íslensku....vetrarfrí....jamm og það er bara gaman af því.
Klukkan hérna úti í DK er núna 3 að nóttu til.....get bara ekki sofið þannig ég ákvað fyrst ég er svona spræk að skrifa nokkrar ómerkilegar línur svona til þess að halda friðinn.
Sara Björk eða fröken Melena eins og hún er kölluð hérna í húsinu....á afmæli á fimmtudagin. En skvísan ætlar að halda upp á það með pomp og prakt á laugardagin...veijjjj.....hún ætlar að bjóða öllum bekknum sínum og einhverjum íslendingum sem við þekkjum hérna í Aarhus.....en ykkur er líka boðið ef einhverjum langar að koma í kreppupartý á Kornmodsbakken.....það verður búninga/frægt fólk þema, en af því það er kreppa þá býst ég við flestum í svörtum ruslapoka....mjög ódýr lausn.
Fór út í búð í dag og ákvað að kaupa mér kreppuháralit....blondínulit, sem by the way ég hef aldrei keypt áður því ég hef aldrei þorað að nota ljósan búðarlit. Ég hef alltaf verið svo hrædd um það mundi verða gult á mér hárið.....en það var annaðhvort að duga eða drepast með ógeðslega ljóta drullubrúna rót....þannig ég ákvað að láta reyna á það. Ég fékk Margréti til þess að lita mig og vitir menn....ég fékk þennan svaka fína lit og er bara miklu ánægðari fyrir vikið. Þannig nú verður þetta að vera svona meðan ég bý hérna úti, maður getur ekki leyft sér að fara á stofu svona í kreppunni. Það verður bara keyptur loreal blondínu litur.....í hverjum mánuði.
En jæja ætti kannski að reyna að koma mér í svefninn....þetta gengur ekki lengur.....en ég ætla að reyna að henda bloggi á morgun eða hinn.
Ég lofa....ok.....10 fingur upp til Guðs......jú Olla ég lofa.....trúirðu mér ekki?...kræst ég hélt við værum vinkonur....
Ok ég var að missa mig í ímynduðu samtali á milli okkar Ollu....hehhe já nú er kominn svefngalsi í mann og það boðar ekki gott.....
Hafið það gott í kreppunni elskurnar mínar....

Kreppurún

15. október 2008 klukkan 01:24
Sigrún Elva Benedikstdóttir
7 athugasemdir
30september

snjókorn falla, á allt og alla, börnin leika og skemmta sér.......

Og það er komið nýtt strætó blogg......veiii hoppa ekki allir af gleði núna.....hehe
Já það er bara hægt að segja ykkur sögur af mínum yndislegu strætó ferðum, nema þessi er nú ekki sérlega góð. Já ég var að koma úr skólanum í gær og tók þristinn góða heim. Nema það að þegar ég er komin í strætóinn og ætla að borga í maskínuna þá sé ég að ég er bara með 17 kr og 50 aura og þar sem kostar 18 kr þá ákvað ég að taka samt sénsinn á að fara með strætónum. Mér leið samt geðveikt illa því það væri eitthvað svo týpískt fyrir mig að kallarnir kæmu inn, sem þeir svo gerðu. Já ég sýndi honum 17 krónurnar mínar og reyndi að sannfæra hann um að ég borgaði alltaf nema í þetta skiptið því mig vantaði 1 kr og ef ég mundi nú redda henni hérna í strætónum, hvort hann gæti þá ekki sleppt mér. Nei það var sko ekki hægt, þeir eru svo geðveikt strangir. Þannig nú er ég í fýlu þessa dagana af því ég fékk 500 kr sekt sem eru 10.000 íslenskar í dag og ekki bætir það upp hvað danska krónann er alltaf að hækka. Þannig ég er eiginlega meira orðin þunglynd....þannig nú er komið að ykkur að kæta mig.Öskrandi
Ég borga alltaf og þessi 2 skipti sem ég hef ekki gert það þá koma þessir leiðinlegu og ljótu kallar, óþolandi. Maður er svo fæddur í þennan heim til þess að lenda í svona skemmtilega óheppilegum krísum. Nú fer Benni bara að stofna styrktarreikning handa sjálfum sér svo hann geti borgað skuldina svo hann lendir nú ekki í fangelsi, því þá kæmist Benni ekki heim um jólin.Fýldur
En svona fyrir utan þetta þá er lífið í Árósum bara fínt, rólegt en fínt. Við sambýlingarnir héldum innfluttningspartý hérna í Kornmodsbakken sl. laugardag. Það voru svona um 20-30 stk af íslensku lambakjöti hérna saman komin, ekki sem verst. Það var bara svaka stemmning og ég held að allir hafi bara skemmt sér vel.
Sara var að fá sendan pakka númer 2 af íslensku nammi, svo nú spyr ég.....á ekkert að senda Benna pakkann sinn svona áður en maður kemur heim um jólin?  Maður er gjörsamlega slefandi hérna en hún Sara er svo góð að hún ákvað að gefa með sér nokkrar súkkulaði rúsínur, svona til að halda okkur góðum. Ég held að það sé líka gert til þess að kæta mig aðeins því ég á mjög erfitt núna eftir strætóferðina.
Við sambýlingarnir erum alltaf að tala um jólin, hvað verður gott að koma heim þá. Ég held ég hafi aldrei áður hugsað um jólin svona snemma, eða í september. Þannig við ákváðum að spila nokkur jólalög um dagin, bara svona til að fá forsmekkinn á því sem er væntanlegt eftir 3 mánuði....góðar....Hlæjandi
En það gengur alltaf betur og betur í skólanum, get verið sátt með það.
En voru ekki einhverjir sem fóru í réttir um helgina og hvað þá réttarball? Þið verðið að segja mér skemmtilegar sögur, maður heyrir aldrei neitt.
Var mjög sátt með að Tindastóll rúllaði yfir skallana í bikarnum á sun. Leikurinn á móti snæfell er nú í gangi þannig ég bíð spennt eftir úrslitum. Áfram stólar....
En ég segi þetta gott í bili. Ég sakna ykkar allra rosa mikið og hafið það gott dúllurnar mínar.
Haldið áfram að vera dugleg að kommenta

500 kjellinn kveður.....að sinni.....Gráðugur
30. september 2008 klukkan 18:51
Sigrún Elva Benedikstdóttir
11 athugasemdir
22september

Benni í Ţingholtinu 1. bindi

Hvað segið þið, viljið þið fá fleiri strætósögur.....hehhe það mætti halda að maður sé á samningi hjá Aarhus sporveje, að koma með reglulega einhver strætóblogg. Tja það er ekki alveg svo gott. Vonandi verða þau ekki fleiri í bili.
En annars er ég ekki að fara að blogga um neitt sérstakt, það er eitthvað lítið sem hefur drifið á daga mína að undanförnu. Bara veðrið er gott hérna í Dk, váá þetta er orðið dáldið sorglegt þegar maður er farinn að blogga um veðrið. En maður þorir ekkert annað en að blogga annað slagið annars verður allt brjálað á fróninu. Svalur
Já hún Hrafnhildur fór að rifja upp hérna gamla sögu úr Þingholtunum. Það var nú meiriháttar borgarferð. Þá var Benni staddur í Rvk, nánar tiltekið í Þingholtunum, að hann hélt. Benni var að heimsækja hana Hrafnhildi og fórum við saman á skrallið með liðinu sem hún var að vinna með þarna í fjármálaráðuneytinu. Já nema það að við Hrafnhildur löbbuðum frá ráðuneytinu og upp í Þingholtið og þar mættum við honum Megasi. Benni er nú alltaf svo kurteis að hann heilsaði Megasi, en hann vildi nú ekki mikið tala við okkur. En já svo komum við í þetta heimahús sem þetta partý var haldið. Þar vorum við að tjútta með liðinu hennar Hrafnhildar, nema það að svo var Kiddi (hrafnhildur) alveg að drepast og þurfti að fara heim þannig Benni var þarna einn á tjúttinu með liðinu hans Kidda sem by the way ég var bara nýbúin að kynnast þarna fyrr um kvöldið. Já maður var bara skilinn einn eftir. En svo var einhver að panta leigubíl þarna í húsinu en Benni sá þegar bílinn var komin fyrir utan. Hljóp út, stökk eins og fagri blakkur yfir grindverkið, lenti jafnfætis og tók svo three sixty og fjórfalda skrúfu og lenti á hnjánum, stóð upp og fór inn í bílinn. Svo lét ég hann skutla mig niður á lækjartorg, en gerði mér ekki alveg grein fyrir hversu stutt þetta var frá þessu blessaða húsi þarna í þingholtinu........heheh þetta var svo mikil snilld þessi ferð.Glottandi
En já þetta var ein saga af mörgum skemmtilegum sem gerðist hérna um árið. Það eru til nokkrar sögur um Benna og Þingholtin. Ein svona stutt að lokum. Benni fór stundum í heimsókn til Júlla Brjáns þegar hann bjó í Rvk, á horni vitastígs og bergþórugötu. Svo var benni alltaf að rausa við júlla hvað honum fyndist nú fallegt hérna í Þingholtunum, þetta endurtók sig aftur og aftur nema það að júlli var orðiðn dáldið þreyttur á þessu rugli í benna og sagði svo að lokum " sigrún þetta er ekki þingholtið, ég bý ekki í þingholtinu" hehehe og ég spurði Ollu hvar hún byggi þá? "ég bý bara hérna í 101" Þannig að ég held ég sé farin að átta mig á hvar Þingholtið er, eða ég held það. Já en þetta eru samt svona had to be there moment, dáldið asnalegt hvernig þetta kemur út svona á riti.
En já svona er það nú. Er samt geðveikt ánægð. Agnes systir og fjölskylda verða heima á króknum um jólin og áramótin. Fyrsta skiptið í mörg mörg ár. Það verður svo gaman að koma heim. Það liggur við að maður sé farin að telja niður dagana.....heheh
En jæja þá er þetta orðið gott í bili.

Benni kveður úr ÞingholtinuKoss
22. september 2008 klukkan 13:14
Sigrún Elva Benedikstdóttir
9 athugasemdir
18september

Stórleikur í strćtó

Wow hvað er að gerast, bara nýtt blogg hjá gömlu....maður er allur að koma til. Ég verð bara að segja frá nýju skemmtilegu ævintýri sem ég og Margét Helga lentum í gær. Skömmustulegur
Við vorum að fara í gærkvöldi á körfuboltaleik Denmark vs. Holland. Það er ekki frásögu færandi nema það að við þurfum auðvitað að taka businn þangað. S.s. í stuttu máli þá þarf maður að borga í businn annað hvort með klippikorti eða setja pening í svona maskínu í businum. En það er enginn í businum að fylgjast með því hvort þú borgir eða ekki, þannig sumir taka sénsinn og borga ekki en stundum koma í businn kallar sem athuga hvort maður sé búinn að borga. Ef þú ert ekki búinn að borga og ert böstaður af þessum hræðilega fólki þá þarft þú að borga 500 dkr sem eru núna svona 8500 kjell íslenskar,geðveikt mikið.Gráðugur
Ég ætla líka að koma því á framfæri að ég borga í hvert skipti sem ég fer í businn því ég tek ekki svona áhættu, og hana nú.Saklaus
Allaveganna við fórum upp í businn í gær og vorum við eitthvað svo mikið að chatta að við gleymdum okkur aðeins og borguðum ekki.... Dóóhh.....svo fór ég eitthvað að tala við bílstjórann og spyrjann hvort við værum rétt hjá Energi hal, nema vitir menn, þegar ég sný mér við og á leið til hennar Margrétar þá situr hún þarna algjörlega hvít í framan og orðlaus. Haldið þið ekki að hræðilega fólkið sé mætt á svæðið og við sem áttum að fara út á næstu stoppustöð.
Margrét: Sigrún sérðu hver er komin?
Ég: Já maður

Margét segir ekkert í smá tíma en tekur upp á því að leika heimska útlendinginn. Vonda kerlingin yfirheyrir hana og er alveg fjúríus reið og spyr Margréti af hverju við séum ekki búnar að borga. Ég stend þarna eins og hálfviti og tek heimska útlendinginn á þetta nema það að ég bara frýs og kem ekki upp úr mér orði.
Margrét: Uhhh we don´t know how to pay( heyrist í M með þessum svaka barnaskólaensku til að gera heimska útlendinginn sem raunverulegastann)
Kjellingin: You have to pay 500 kr
Margrét stendur upp og við löbbum frammí en þar stendur þessi kjell og segir okkur að borga.
Margrét: We don´t know how to pay
Kjellinn: Where are you from
Margrét: Iceland

Ég og Margret saman í kór: We have to go out now, we have to go out now( og svo bentum við alltaf út)
Svo stoppaði businn þar sem við áttum að fara út og við fórum út en kjellinn sagði okkur að bíða úti. Okkur langaði helst til þess að stinga af en við höfðum örugglega verið eftirlýstar af Interpool, þannig við slepptum því. Kjellinn kemur út segir að við þurfum að borga 500 dkr.
Við: We don´t have any money
Margrét: Can you be good please, be good please.
Hann labbar frá okkur alveg í fússi og leyfði okkur að fara. Við vorum alveg með hjartað í brókinni þegar við löbbuðum af stað. Í svo miklu sjokki að við þurftum að kaupa okkur einn kaldann þegar við komum á leikinn. Okkur leið eins og við hefðum drepið einhvern. Þvílíka samviksubitið sem maður fékk, bara af því við gleymdum að borga í strætó.....heheGráta. En það var geðveikt fyndið að Margét hélt á klippikortinu sínu þegar kjellingin kemur að henni. En kjellan sá það ekki. En svo þegar ég hugsa út í þetta núna þá get ég ekki annað en hlegið, þetta var ógeðslega fyndið dæmi og sérstaklega að sjá Margréti fara að kostum í hlutverki heimska útlendingsins.Hlæjandi Fær alveg óskarinn fyrir þessa frammistöðu. Bravó Margrét Bravó.....hehhee
En við vorum með alveg frábært uppistand í strætónum og ég held að fólk hafi bara alveg fílað það, þetta hefur örugglega stytt strætóferðina fyrir þau. Það er alltaf svo gaman að taka strætóinn hérna í Árósum, allskonar rugl sem maður lendir í. Maður getur alveg sleppt því að fara í bíó eða leikhús, maður fer bara í strætóinn til skemmtunar.
En eftir allt saman þá töpuðu svo danirnir. Vorum ekki alveg sáttar með það, sérstaklega þar sem þeir voru eiginlega betri aðilinn lengi af. En voru orðnir eitthvað daprir í endann.
Jæja en ég þarf að fara að halda áfram að læra Socialret og aktivloven = lov om aktiv socialpolitik. Hljómar vel. En svo var Margrét að bjóða mér í mat til sín í kvöld - Pizza ala Margét eins og hún kýs að kalla réttinn. En aldrei að vita hvað við gerum af okkur í kvöld. Það er erfitt að komast inn í hausinn á svona stórkrimmum. Við heyrumst á ný. Hafið það gott á gamla góða fróninu.Ullandi

18. september 2008 klukkan 14:02
Sigrún Elva Benedikstdóttir
9 athugasemdir
17september

Moonlight

Jæja hehe nú er Júlli Brjáns (olla) orðinn alveg brjál yfir því að Benni sér ekki búinn að blogga í marga daga. Já það koma svona blogg letiköst yfir mann og ok Júlli og Sessa þið eruð heimavinnandi og þurfið smá afþreyfingu, en mar getur bara ekki verið að blogga hérna 24/7. Give Benna a brake.
En já ég lenti í skemmtilegu ævintýri um dagin. Já ég var að koma úr skólanum og ætlaði að taka strætóinn heim nema það að þetta var í fyrsta skiptið sem ég tók þristinn heim. Já ok allt í góðu, ég ætlaði að fara að massa þetta heldur betur. Ok ég sest upp í strætóinn í gúddí fíling með "moonlight" lagið á heilanum.Ok strætóinn keyrir upp brekkuna frá skólanum og allt í átt þar sem ég bý nema það að hann beygir ekki í hverfið mitt(en þetta er samt strætó sem keyrir alveg næstum því að húsinu mínu), en hann heldur áfram og það næsta sem ég sé er að hann er kominn út fyrir Aarhus og kominn í lítinn bæ rétt fyrir utan sem heitir Trige. Allaveganna ég var ekkert að stressa mig á þessu, hélt bara að hann mundi svo snúa aftur við eftir smá og fara aftur inn í Aarhus. Nema það að ég er orðin ein eftir í strætónum, mér leið eins og Palli var einn í heiminum. Mér leyst ekkert á það þegar bílstjórinn leggur strætónum og kallar aftur og spyr mig hvert ég sé að fara. Ég fór til hans til að segja honum að ég hafi ætlað að fara til Hastle og þá sagði hann að ég hefði átt að taka þristinn sem færi niðrí bæ, svo mundi hann fara aftur upp brekkuna(Viborgvej) og til Hastle þar sem ég bý....hehhe já frábært.....Mér leið ekki smá kjánalega og hugsaði bara um það hvað stelpurnar mundu gera mikið grín af mér þegar ég kæmi heim, þar að segja ef ég kæmist heim.Ullandi
En hann sagði að hann mundi ekki fara af stað aftur til Aarhus fyrr en eftir 40 mín. Ó mæ god, ég meika ekki að vera þarna í 40 mín og chilla. En hann sagði mér að hann væri að fara að fá sér að borða og spurði hvort ég vildi bara ekki koma með honum, hann ætlaði að gefa mér eitthvað að borða. Heheh ég sagði að ég gæti komið með honum en hann þyrfti nú ekki að kaupa handa mér að éta. Svo fórum við á tyrkneskan veitingastað þar sem hann vildi svo mikið gefa mér eitthvað að borða, þannig það endaði með því að ég sagði að hann mætti kaupa handa mér Shawarma. Ótrúlega almennilegur en þetta var ótrúlega fyndið atvik, en svo fórum við að borða matinn inn í svona skúr sem strætóbílstjórarnir hafa sem aðstöðu. Við spjölluðum og átum okkar mat þarna í skúrnum, voðalega nett á því.....heheh.
En það var lika helvíti fyndið að þegar við vorum að fara af stað til Aarhus þá kemur annar þristur sem er að fara að stoppa í 40 mín en það var ein kona sem fór úr þeim strætó og yfir í okkar. Ég heyri að hún talar íslensku í síman og er að segja einhverjum frá því að hún hafi tekið vitlausan strætó og endað í Trige. Ég spurði hana eftir að hún var búin að leggja á, hvort hún hafi gert sömu vitleysu og ég, og já sama sagan þar. Hún var að koma úr skólanum og átti að taka þristinn sem fer niðrí bæ. 
Mér leið strax betur að vita af því að ég væri ekki sú eina sem svona hlutir geta hent. Jamm ég veit hvað þið öll hugsið......týpísk Sigrún, en málið er að ég er ekki dofin að eðlisfari eins og margir hafa sagt mér að ég sé, heldur er þetta meira svona destiny, mér er ætlað að lenda í svona skemmtilegum atvikum. Glottandi
Já svona hlutir gera dagamun og er bara gaman af þessu. 
Ég og Margrét Helga ætlum að fara á körfuboltaleik í kvöld, Danmörk vs. Holland. Leikurinn er haldinn hér í Aarhus, það verður geggjað að fara á körfuboltaleik. Ég á eftir að sakna þess í vetur að sjá ekki stólana spila, verð þá að fara á leiki með Bakken Bears. Var ekki smá ánægð með íslensku strákana um dagin að landa sigri á móti dönum. Ég var komin í stellingar til að horfa á þann leik því hann var sýndur í tölvunni á danskri netsíðu, en nei fráb þá virkaði það ekki, ég var alveg ílla fúl með það.
En já af skólanum þá gengur bara ágætlega. Þetta er ennþá erfitt en þetta tekur bara tíma. En frábær bekkur sem ég er í, alveg æðislegir krakkar og félagslífið í skólanum alveg frábært. Það er allaf eitthvað um að vera. Síðasta föstudag þá var Store Fredag, þá var haldin svaka stór skemmtun sem var í skólaparkinum. Þetta var semsagt fyrir allar deildir í skólanum og já ok það var geðveikur fjöldi. Fullt af live böndum og tónlist og kaldur í hverju horni. Ótrúlegt hvað var mikið gert fyrir þennan eina dag. Við í bekknum hittumst fyrir og hituðum aðeins upp fyrir þessa skemmtun.
En já Júlli og Kiddi, það var danskt band sem spilaði lagið okkar "moonlight" og þá missti Benni sig alveg á dansgólfinu, þvílíka snilldin. Það vantaði ykkur alveg þá.....heheSvalur
En annars gengur bara vel hérna úti og ég vona að þið öll hafið það gott líka. 
Elsku Dagmar og Benni til hamingju með nýja hundinn. Þið eruð sko heppin að fá að eiga hund, þið verðið að senda mér mynd af honum. Ég hlakka til að sjá ykkur dúllurnar mínar, ég get varla beðið.
En já með myndirnar. Ég hef ekki getað sett neinar myndir því ég gleymdi einhverri snúri heima sem ég þarf að tengja í tölvuna svo ég geti sett þær inn en Fúsi ætlar að senda mér þessa snúru og já Þórey ætlar að senda mér nammi. Heldur að það sé ekki munur að eiga svona góða mágkonu. Sem hugsar alveg um nammigrísinn sinn. Takk fyrir það Þórey, bingókúlur takk.....
Já þannig ég verð dugleg að setja myndir inn þegar þetta er komið. En jæja er þetta ekki orðið ágætt í bili. Og já ég lofa að þið heimavinnandi mæður þurfið ekki að kveljast svona lengi aftur. Þið fáið nýtt blogg bráðlega.
P.S takk fúsi fyrir að hafa knúsað Halla og nuddað geirvörturnar hans Óla....heheUllandi
En já hafið það gott og ég læt heyra í mér. Og já meðan ég man þá erum við með íslenskan heimasíma þannig ef þið viljið hringja í mig ódýrt þá getið þið hringt í mig í síma 496-0688, þennan síma getið þið hringt eins og þið séuð að hringja úr ykkar heimasíma í annan heimasíma á íslandi, kostar það sama. Og þið þurfið ekki að bæta neinu við símanúmerið, þetta er bara íslenskur heimasími. Endilega hringið í mig, er eiginlega alltaf heima á kvöldin.


 
17. september 2008 klukkan 11:17
Sigrún Elva Benedikstdóttir
8 athugasemdir
05september

Tyrkjarúna

Jæja ég tók smá letikast á þetta. Það er bara búið að vera brjálað að gera hjá mér. Skólinn byrjaður á fullu og það er bara læra læra og læra og svona hygge sig om aften. En já s.s. þá byrjaði Benni í skólanum á mánudaginn. En það var lítið gert annað en að hlusta á fyrirlestra og svo komu tutorer, sem eru lengra komnir nemendur í sama námi, og kynntu okkur fyrir náminu og skólanum og det hele. En þetta var bara hyggeligt eins og daninn segir. En á þriðjudeginum var farið í hyttetur sem er í rauninni svona eins og nýnemaferð. Við fórum í hús svona klst frá Aarhus og þegar við komum var farið með okkur út í leiki. Manni leið svona eins og back in the day, það kom þessi krakki í mann. Það var farið í allskonar keppnir á milli hópa og vann minn hópur alltaf....já krakkarnir voru mjög heppin að hafa mig í sínum hóp....hehe. Svo var bara festað um kvöldið og svo gistum við þarna eina nótt. Tutorarnir fóru með okkur og var þetta allt saman skipulagt af þeim, þetta var alveg ótrúlega gaman. Þarna náði mar líka að kynnast svo mörgum í bekknum og virka þau bara flest alveg ótrúlega fín. Ég er búin að eignast nokkra svona góða vini úr bekknum mínum og þau eru ótrúlega góð að hjálpa mér með dönskuna og svona ef það er eitthvað sem ég skil ekki.Koss Ég verð að viðurkenna að þetta er mjög erfitt og það koma alveg tímar sem ég skil varla neitt. Eins og t.d. í gær var ég í tíma sem heitir Jura sem er svona lögfræði. Jáhá einmitt í þeim tíma skildi ég ekki baun. Svo talar kennarinn geðvikt hratt og óskýrt og danirnir sögðu mér að þeir skildu sjálfir ekki mikið. Svo mikið af erfiðum orðum, svona framandi orðum. En þetta kemur vonandi fljótt, ég er bara bjartsýn og ég er dugleg,þó ég segi sjálf frá, því ég tala bara dönsku og spyr þau bara hvernig mar segir orð sem ég kann ekki að segja. Það verður bara að redda sér, mar er kominn hingað út til þess að læra þetta. En það er mjög gaman í skólanum og ég er bara sátt með þetta.
En danirnir geta samt alveg gengið fram af manni stundum. Svo ótrúlega spés svona sumir hverjir. Allaveganna þá var það einhver sem spurði kennarann hvernig það væri, hvort fólk gæti mætt aðeins of seint og bara ekkert  mál. Kennarinn spurði hvernig við mundum vilja hafa þetta. Þá var byrjað að ræða þetta í næstum hálf tíma því það þurftu nánast allir að tjá sig um þetta. Einhver vildi að það mætti koma 5 mín seint en ekki meira og einhver vildi 15 mín og þá var einhver brjálaður af því það truflar of mikið g svona gekk þetta fram og aftur þangað til að það var ákveðið að það eru gefnar 5 mín og ef þú kemur svo að hurðinni lokaðri þá máttu ekki koma inn í tíma fyrr en í pásunni sem er 45 mín seinna. Hehehe þetta er alveg órúlegt. Manni leið meira svona eins og mar væri í barnaskóla heldur en í háskóla. Það sem þeir geta masað og það um ótrúlegustu hluti eins og e-ð svona sem mar er ekkert að spá í. En ok svo hitti ég stelpu sem heitir Dagný og er í hinum bekknum. Hún fór að segja mér áðan að í tíma hjá henni þá fór einhver að tala um þetta sama og nema það að það var búin til sú regla að það má bara senda 1 sms í tíma og þú verður að gera það með höndina undir borðinu, svo þú truflir engan. Hehe ok þetta er ekki búið. Svo var einhver sem stakk upp á því að banna fartölvur í tíma. Af því að það truflar og þessi sama manneskja sagði að það mundi trufla hana svo mikið því þá færi hún að lesa glósurnar hjá hinum. Hehe þarna var ég alveg orðin orðlaus, þannig þetta er bæði barnaskóli og fangelsi. En það fyndnasta er að þetta er allt komið frá nemendum en ekki kennurum. Sumt fólk er bara alveg BÍBB.....tek bara Óla Stef á þetta.Öskrandi
Svo erum við stelpurnar að fara að flytja á morgun í Kornmodsbakken sem er hérna í Aarhus Vest en Þar er svona blanda af íslendingum og múslimum. Það yrði gott þorrablót þar....hehe
En við erum búin að vera með í láni íbúðina hjá Margréti og Helga sem er líka í Aarhus V. En þau eru ótrúlega heppin því að á horninu er svona tyrknesk búð eða meira svona búlla sem "vinur" okkar er að vinna í. Hann byrjar alltaf að spjalla á fullu við mann þegar mar kíkir til hans til að kaupa slik á kvöldin. Fyndin náungi sá, en þessi búð er svona ein rykhrúa, allar vörur í klessu og ef það kæmi smá skjálfti þá mundi hún hrynja, en samt sem áður mjög skemmtileg og framandi búð. Mar verður að halda áfram að kíkja til hans þó mar sé fluttur. Það er líka svo einstaklega gott nammið þarna, geðveikt harður lakkrís og súkkulaðið við það að renna út en hey þetta er búlla með karekter.
Ég, Elín og Sara kíktum um dagin til hjónanna sem ætla að leigja okkur húsið sitt. Þau voru mjög almennileg en þetta er ísl. kona og þýskur maður. Það eru 4 svefnherbergi og bættist ein ísl. stelpa við þannig við verðum 4 að búa saman, en þetta verður voða kósý og lækkar líka leiguna hjá okkur. Þessi stelpa heitir Sveina og er með Söru í lækninum, en henni vantaði stað til að búa á. Var búin að vera að leyta út um allt en það er bara mjög erfitt að finna íbúð hérna. En húsið er voða flott og á eftir að fara vel um okkur þarna.
En já annars gengur allt vel og það er bara gott að frétta af okkur öllum. Ég vona að það sé það sama hjá ykkur. Það eina sem er að ég sakna familíunnar minnar mikið og auðvitað ykkur vinina. Það verður geðveikt gaman að hitta ykkur öll um jólin. Hey Ásta þú verður að knúsa Benna, Dagmar og Eyþór alveg ótrúlega mikið fyrir mig, ég sakna þeirra svo mikiðGráta Þú verður líka að knúsa pabba alveg risastóru knúsi frá mér.
En annars þá held ég að þetta sé komið gott í bili. Hafið það gott og ég læt heyra frá mér fljótlega aftur.

Sigrún sem elskar að kaupa slik í tyrkjabúllunni
05. september 2008 klukkan 18:10
Sigrún Elva Benedikstdóttir
13 athugasemdir
31ágúst

Afmćlissnúllur

Litlu frænkur mínar þær Arney Lind og Dagmar Björg áttu báðar afmæli um dagin og verð ég því að búa til svona sérstakt blogg til þeirra.
 Til hamingju elsku snúllurnar mínar með afmælið ykkur um dagin. Ég elska ykkur svo mikið og sakna ykkar alveg rosalega. Ég hlakka svo til að hitta ykkur aftur. Vonandi var afmælisdagurinn ykkar skemmtilegur(þó svo að þú Dagmar hafir ekki fengið að ráða neinu í afmælinu þínu...hehehe) Glottandi Hafið það gott dúllurnar mínar.

31. ágúst 2008 klukkan 11:42
Sigrún Elva Benedikstdóttir
3 athugasemdir
30ágúst

Halli í Enni

Úff þá er sjálfu ferðalaginu til Danmerkur lokið. Þetta var ekki beint efni í Disney mynd. Vorum komnar á flugvöllinn og á leiðinni í vélina þegar okkur var tilkynnt að við þurftum að bíða í 5 mín...já ok sleppur til, jæja svo var það 10 mín....já en ekki mínútu lengur, en já fráb, svo var það komin í 1 klst og þá var þetta orðið frekar þreytt en nei þá kom bara bomban á þetta og sagt að það væri búið að fresta þessu blessaða flugi í 4 klst. Ok ok en við (ég og Sara)hoppuðum alveg af gleði eða þannig því það voru miklar líkur á því að við mundum missa af lestinni okkar til Árósa. En hey Sara sá Óla president á vellinum þannig það var alveg þess virði að bíða á vellinum. En já já ég nenni ekki að skrifa meira um þetta ferðalag, við komust allaveganna á leiðarenda seint um síðir þannig kannski endaði þetta eins og fínasta Disney mynd.
Skólinn hjá mér byrjar á mánudaginn og verð ég bara að segja að ég er orðin mjög spennt.
Við Sara erum búnar að vera að massa dönskuna á fullu, eða okkur finnst það. En það var reyndar mjög fyndið þegar við vorum nýkomnar á danska grund og ætluðum að kaupa lestarmiðann okkar þá ákváðum við bara að tala dönsku og bjarga okkur. Ekkert mál fyrr en kom að því að borga miðann, þá skildum við ekki neitt. Bara runan kom frá þessum yndislega danska afgreiðslumanni, sexhundredtreoghalvtreds eitthvað svona, og við bara ja ja.....svo snérum við að hvor annari. Æj hvað er þetta mikið, báðar alveg, ég veit það ekki. Þá þurftum við að spyrja hann aftur og hann bara kom með rununa aftur og við eitthvað svona ohh hvað er hann að segja og hlóum svo bara. Þannig við spurðum hann í 3. skiptið eins og mestu fávitar og greyið gat ekki annað en hlegið að okkur en við gátum borgað að lokumHlæjandi
Annnars er bara æðislegt að vera komin og frábært veður og svona.
Í gær byrjaði Aarhus festuge, þá fara allir niðrí bæ á skrallið. Við Elín kíktum aðeins og hittum nokkra íslenska stráka sem Elín þekkir úr læknisfræðinni. Þeir voru svaka hressir og þvílíkt gaman hjá okkur en Sara er í nýnemaferð þannig við Elín erum einar í koti.
Jæja það er laugardagskvöld og ég er að spá í því að fara bara í bælið. Vakna fersk á morgun og kannski hreyfa mig eitthvað af viti svona til tilbreytingar.
Verð bara að segja að ég sakna Simba svo ótrúlega mikið þannig ef þig sjáið simba sæta, fullu nafni Sigmund Björn, þá megið þið alveg knúsa hann rosa mikið fyrir mig. Hann er mesti dúllurass í heimi og líka Eyþór Bjarmi litli nýi frændi minn. Og líka Ásdís Rós og Hildur Eva rúsínur......æjj fyrst ég er byrjuð á þessu þá líka Halla í Enni, Óla Skorr og Geira á Goldfinger.....hehe I´m cracking my self up.....ok þetta fór aðeins úr böndunum en annars hafið það gott kæru vinir og vandamenn.
Benni brjáns kveður að sinni.......lagið einn dans við mig er tileinkað Sessu og Einari
30. ágúst 2008 klukkan 22:15
Sigrún Elva Benedikstdóttir
1 athugasemd
22ágúst

testing testing

Jæja þá er bara að fara að upplifa sig sem Carrie í sex and the city og fara að rita hér einhverjar færslur....það er spurning hvort maður finni einhvern Mr. BIG í Baunalandi.
Jú svo sem þarf ég ekki að leyta langt því ég veit um hinn rétta aðila......hann vippaði honum niður Fjósaklettinn um daginn og voru þar nokkrir sem fengu frítt að spranga um Þjóðhátíð. Já Helgi minn, þú veist alveg hver þetta erUllandi En Helgi og Margrét munu verða nágrannar mínir á næstunni, en þau heppin.

Nú styttist í það að ég flytji til Danmerkur, aðeins 4 dagar. Þetta sumar er búið að vera allt of fljótt að líða, það er svona þegar það er gaman.
Ég er að fara til Árósa til að stunda þar nám í félagsráðgjöf og er ég orðin mjög spennt fyrir því. En ég er líka það heppin að ég er að fara að búa með tveimur yndislegur stelpum frá Króknum, þeim Elínu Maríu og Söru Björk. Við erum komnar með einbýlishús á leigu, þannig ef ykkur langar í heimsókn þá tökum við á móti vinum og ættingjum með opnum örmum og hjartað á réttum stað, aldrei að vita nema við lumum líka á einum köldum með.
En jæja þetta er orðið gott, það er kominn háttartími, verð að fara að lúra.

22. ágúst 2008 klukkan 02:03
Sigrún Elva Benedikstdóttir
5 athugasemdir

Ađalvalmynd

Auglýsing